Morfís

Morfís

Kaupa Í körfu

ÚRSLITAVIÐUREIGN Morfís, Mælsku- og rökræðukeppni framhaldsskólanna, fór fram í Háskólabíói föstudagskvöldið sl. Lið Verslunarskóla Íslands og Menntaskólans við Sund börðust hatrammlega í ræðustóli og fór svo að MS sigraði. Umræðuefnið var „Fáfræði er sæla“ og mælti MS með efninu. Niðurstaðan hlýtur því að vera sú að fáfræði sé sæla, í það minnsta færðu MS-ingar nægilega sterk rök fyrir því til að sannfæra dómnefnd. Liðin voru hvött hressilega áfram eins og meðfylgjandi myndir sýna. MYNDATEXTI Sigurvegarar Lið MS fagnaði ógurlega þegar úrslit lágu fyrir.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar