Rúbbí fyrir utan Háskóla Íslands
Kaupa Í körfu
Á brókinni Þessir ungu herramenn léku sér fyrir framan Háskóla Íslands. - Veðrið leikur við nú við landsmenn og hitinn fór í tæpar tuttugu gráður á Suðurlandi í gær. Veðurspár sýna áframhaldandi blíðviðri fram yfir helgi og í dag er spáð góðu sumarveðri um mikinn hluta landsins nema helst suðaustanlands. Víða verður hitinn á bilinu 15-20 stig en draga mun úr mestu hlýindunum á sunnudag. Fjölmenni var við Nauthólsvíkina í Reykjavík. Margir höfðu það einnig náðugt á Austurvelli, fengu sér ís og létu erlenda ferðamenn um að stunda göngutúra með kort og pinkla í sólarbreyskjunni, aðrir skelltu sér í sund. Sum fyrirtæki gáfu starfsfólki frí vegna veðurs. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir í veðuryfirliti fyrir mbl.is að það merkilega virðist ætla að fara gerast að veður fari hlýnandi á landinu á föstudag með norðanog norðaustanátt en slíku eigi landsmenn ekki að venjast. Ástæðan sé sú að fyrir vestan og norðvestan landið sé hlýr loftmassi sem eigi greiða leið yfir landið við þessar aðstæður.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir