Blómkál

Sigurður Sigmunds

Blómkál

Kaupa Í körfu

„Sprettan er góð og hefur haldist fram undir þetta. Frost hefur ekki spillt fyrir. Síðustu daga höfum við verið í miklum önnum við að ná uppskeru í hús,“ segir Sigrún Pálsdóttir á Flúðum. Hún og Íris Georgsdóttir unnu í gær við að taka upp blómkál á ökrunum við Flúðir, en Sigrún og Þröstur Jónsson eiginmaður hennar eru umsvifamikil í kálrækt. Uppskeruna selja þau til Reykjavíkur en eitthvað verður þó í boði í heimaranni á Flúðum um helgina þar sem haldin er sveitamarkaðurinn Matarkistan hvar ýmislegt góðgæti úr sveitinni er á borðum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar