Öldúnkar að loknu Airwaves. Bjórkútarnir í stæðum eftir helgina

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Öldúnkar að loknu Airwaves. Bjórkútarnir í stæðum eftir helgina

Kaupa Í körfu

Bjórkútarnir voru í stæðum fyrir utan skemmtistaðinn Venue í miðbæ Reykjavíkur í gær eftir tónlistarhátíðina Iceland Airwaves sem lauk á sunnudagskvöld. Unnið var við að safna tómum kútunum saman af nærliggjandi stöðum enda stutt á milli helstu tónleikastaða hátíðarinnar. Miklar annir voru á veitingastöðunum um helgina og miðað við fjölda bjórkúta sem stóðu eins og minnisvarði um skemmtun helgarinnar er óhætt að fullyrða að hátíðargestir hafa ekki þurft að fara þyrstir heim.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar