Hvítt í Esjuhlíðum

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Hvítt í Esjuhlíðum

Kaupa Í körfu

Þakið klárað fyrir veturinn Grámi í fjöllum og vetur nálgast Kuldalegt var um að litast í höfuðborginni í gær og snjókomu varð vart. Snjólínan í Esjunni virðist vera að skríða nær og nær og eflaust er þess ekki langt að bíða að veturinn gangi í garð, en fyrsti vetrardagur er á laugardag. Á aðfaranótt fimmtudags er spáð næturfrosti í borginni. Að sögn lögreglunnar á Akureyri hefur hálku ekki orðið vart, en þar var í gær þurrt frost og grámi í fjöllum. Veðurstofan spáir éljum og svölu veðri á norðan- og austanverðu landinu út vikuna. Sunnanlands er búist við bjartara veðri fram yfir helgi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar