Þór - FH 2:2

Skapti Hallgrímsson

Þór - FH 2:2

Kaupa Í körfu

Fjórir leikmenn úr Pepsi-deild karla í fótbolta voru í gær úrskurðaðir í leikbönn og spila ekki með sínum liðum í 11. umferð deildarinnar um næstu helgi. Það eru Matthías Vilhjálmsson úr FH, Kjartan Henry Finnbogason úr KR, Samuel Tillen úr Fram og Þórir Hannesson úr Fylki. Tveir leikmenn úr Pepsi-deild kvenna fengu eins leiks bann vegna brottvísunar, þær Elín Svavarsdóttir úr Aftureldingu og Manya Makoski úr Þór/KA.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar