Slys Hafnarfjarðarbraut

Slys Hafnarfjarðarbraut

Kaupa Í körfu

Maður slasaðist í umferðarslysi sem varð í Kópavogi í gærkvöldi. Ökumaður var einn í bílnum. Að sögn lögreglu er talið að ökumaðurinn hafi verið í kappakstri við annan og hafi í kjölfarið misst vald á bílnum. Bíllinn lenti á ljósastaur og valt. Slysið varð á Hafnarfjarðarvegi við Kópavogslæk, í norðurátt, og þurfti að loka Fífuhvammsvegi um tíma vegna slyssins. Að sögn læknis á bráðadeild Landspítala bendir flest til að áverkar hans séu minniháttar. Guðbrandur Sigurðsson, varðstjóri í lögreglunni, segir alvarlegt þegar ökumenn missi stjórn á bílum sínum í kappakstri. Sem betur fer séu þessi mál ekki algeng.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar