Bókamessan í Frankfurt - GOÐAFOSS

Bókamessan í Frankfurt - GOÐAFOSS

Kaupa Í körfu

Bókin Goðafoss vekur mikla athygli á bókastefnunni í Frankfurt. Sigurður segist ekki bitur. Koske ekki svefnsamt vegna sektarkenndar. „Þú ert þessi ofurmaður! Hvernig líður þér?“ segir Horst Koske er hann sest hjá Sigurði Guðmundssyni. Augnabliki áður höfðu báðir tárast er fundum þeirra bar saman í fyrsta skipti og var það á bókastefnunni í Frankfurt í gær. Koske var loftskeytamaður á þýska kafbátnum U-300 sem skaut Goðafoss niður 10. nóvember árið 1944 og var Sigurður háseti á Goðafossi. „Hvernig er heilsan?“ spyr Sigurður nærgætinn á móti. MYNDATEXTI: Stór stund Koske grét er hann hitti Sigurð á blaðamannafundinum í gær. Svo gerði Sigurður slíkt hið sama.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar