Megas og Júpíters æfa fyrir tónleika

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Megas og Júpíters æfa fyrir tónleika

Kaupa Í körfu

Hinn þjóðkunni tónlistarmaður Megas mun næstkomandi laugardagskvöld stíga á svið í Iðnó ásamt hljómsveitinni Júpiters. „Megas ætlar að koma þarna fram með okkur og taka nokkur lög með Júpiters,“ segir Halldór Lárusson, trommuleikari sveitarinnar Hann bendir á að Megas hafi látið mjög lítið fyrir sér fara á síðustu misserum og segir að Megas muni flytja eigin lög með hljómsveitinni. „Þetta eru lög sem hann valdi sjálfur. Meðal annars Reykjavíkurnætur og fleiri lög,“ segir Halldór og bætir við að það sé alltaf stórviðburður þegar Megas kemur fram á tónleikum. Hægt er að kaupa miða á tónleikana á vefsíðunni midi.is.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar