Hamingjuhádegi í Ráðhúsi Reykjavíkur

Rósa Braga

Hamingjuhádegi í Ráðhúsi Reykjavíkur

Kaupa Í körfu

Markmiðið með hamingjuhádegi Reykjavíkurborgar og Hamingjuhússins er að eiga skemmtilega stund saman og stuðla að meiri hamingju og vellíðan borgarbúa. Boðið verður upp á skemmtilega dagskrá sem fær hamingjuhormónana í líkamanum til að flæða hraðar, s.s. tónlist, hlátur, söng og ýmsar gleði-uppákomur. Kunnir tónlistarmenn munu hjálpa borgarbúum að hlaða gleðibatteríin. Má þar nefna Valgeir Guðjónsson, Svavar Knút og Kristjönu Stefáns og Jakob Frímann Magnússon. Fastir liðir verða hamingju-nesti, vímugjafi dagsins og sérhverri dagskrá lýkur svo með dansgöngu eða „dance walk“. Meðal gesta í fyrsta hamingjuhádeginu var sjálfur borgarstjórinn, Jón Gnarr.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar