Skrekkur

Skrekkur

Kaupa Í körfu

Langholtsskóli hrósaði sigri í Skrekk, hæfi- leikakeppni grunnskóla Reykjavíkurborgar, en úrslit keppninnar fóru fram í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi. Átta skólar áttu sæti í úrslitunum eft- ir að 25 skólar höfðu skráð sig til leiks. Réttar- holtsskóli hreppti annað sætið og Hlíðaskóli það þriðja. Keppnin var fyrst haldin árið 1990 og hafa mörg þúsund reykvísk börn fengið að spreyta sig í henni í gegnum tíðina.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar