Sigmundur Davíð seldi Neyðarkallinn í Smáralind
Kaupa Í körfu
Arnór Fannar Reynisson verslunarstjóri Epli.is í Smáralind var málaður eins og uppvakningur í tilefni af hrekkjavökunni og keypti að sjálfsögðu Neyðarkall af forsætisráðherranum. - Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra ýtti í gær úr vör hinu árlega söfnunarátaki björgunarsveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar með því að selja fyrsta eintakið af neyðarkallinum. Sá er áfastur lyklakippu og seldi forsætisráðherra þann fyrsta á göngum Smáralindar. Neyðarkallinn er nú í gervi björgunarsveitarkonu með fyrstu-hjálparbúnað: sjúkratösku og upprúllað teppi. Er þetta í áttunda sinn sem neyðarkallinn er seldur en söfnunin fer fram víða um land næstu daga. Fram kemur í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu að fjáröflunin sé orðin ein sú mikilvægasta fyrir sveitirnar.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir