Mósambík - Flóð
Kaupa Í körfu
Búist við fellibylnum Eline inn yfir Mósambík í dag Í kjölfar mestu flóða í 40 ár BÚIST var við, að fellibylurinn Eline kæmi inn yfir Mósambík í dag og hann yki þá enn á hörmungar landsmanna, sem þeir glíma nú við mestu flóð í landinu í 40 ár. Hafa meira en 300.000 manns misst heimili sín af völdum þeirra. Veðurfræðingar í Mósambík segja, að mikil upphitun sjávar í Mósambík-sundi hafi valdið fellibylnum, og Veðurstofan í Suður- Afríku sagði í gær, að bylurinn væri þá þegar farinn að valda miklu úrfelli með ströndinni, á milli Beira og Vilanculos, og væri að eflast. Um síðustu helgi fór hann yfir Madagaskar þar sem nokkrir menn týndu lífi og þúsundir manna urðu heimilislausar. Búist var við, að Eline kæmi fyrst inn yfir Inhambane-hérað í Suður-Mósambík og Gaza-héraði og ná síðar einnig til Sofala-héraðs um mitt landið. Fór bylurinn yfir með 25 km hraða á klukkustund og vindhraðinn var um 120 km á klst. Hafa verið gefnar viðvaranir til allra skipa og þeim skipað að halda tafarlaust til næstu hafnar. MYNDATEXTI: Hópur drengja að leik við skemmdan bíl í úthverfi Maputo eftir fellibyl sem gekk nýlega yfir borgina.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir