Jóna Eðvalds SF - Loðnuskip
Kaupa Í körfu
"Hvellurinn eins og fallbyssuskot" Jóna Eðvalds SF fékk á sig brotsjó LOÐNUSKIPIÐ Jóna Eðvalds SF fékk á sig brotsjó í fyrrakvöld þegar skipið var á siglingu í Faxaflóa, um 25 mílur suður af Snæfellsnesi. Rúða í brú skipsins brotnaði en engan sakaði. Minniháttar skemmdir urðu á tækjum. Jóna Eðvalds SF var á leið á loðnumiðin við Snæfellsnes í fyrrakvöld en þá var haugasjór og vonskuveður á Faxaflóa, að sögn Ingólfs Ásgrímssonar skipstjóra. "Brotið lenti á bakborðshlið skipsins og við það brotnaði brúargluggi og sjórinn fossaði inn. Krafturinn var ógurlegur og hvellurinn þegar brotið skall á rúðunni eins og fallbyssuskot. Við vorum tveir uppi í brú en vorum báðir stjórnborðsmegin í brúnni og mildi að enginn skyldi slasast." MYNDATEXTI: Ný rúða komin í og að loknum viðgerðum var skipið tilbúið til veiða.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir