Sólin gleður og léttir lund
Kaupa Í körfu
Fyrstu sex dagar þessa maímánaðar nú eru þeir sólríkustu í Reykjavík frá því að sólarmælingar hófust fyrir um 90 árum. Þetta kemur fram í bloggi Sigurðar Þórs Guðjónssonar (nimbus.blog.is). Hinn 6. maí skein sólin í 16,1 klukkustund sem var lengur en nokkru sinni frá því að sólskinsmælingar hófust. Eldra met var 15,8 klukkustundir. Daginn áður, 5. maí, var einnig slegið sólarmet en þá skein sólin í 16,0 stundir en fyrra met var 15,7 stundir. 4. maí skein sólin í 15,7 stundir en áður hafði hún skinið lengst í 15,6 stundir. Sólskinið hinn 3. maí sl. jafnaði fyrra met og naut sólar í 16,0 stundir þann dag. Sól var ekki gengin til viðar í gær þegar punkturinn var settur aftan við þessa frétt í glampandi sól. Sólskinsmetið hinn 7. maí var 16,1 klukkustund. Veðurspáin gerði ráð fyrir því að heiðskírt yrði að morgninum í dag og svo léttskýjað fram eftir degi á höfuðborgarsvæðinu
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir