Íslandsmótið í Skák - Háuloft - Harpa
Kaupa Í körfu
Jóhann Hjartarson að tefla við Lenku, á næsta borði er Jón L. Árnason Sterkasta Íslandsmót skáksögunnar hófst í gær í Háuloftum í Hörpu. Þremur skákum lauk með sigri en öðrum með jafntefli. Keppnin í ár er einstaklega spennandi að sögn Gunnars Björnssonar, forseta Skáksambands Íslands, en óvæntustu úrslit gærdagsins voru jafntefli milli Sigurðar Daða Sigfússonar og Hannesar Hlífars Stefánssonar sem hefur tækifæri til að slá eigið met vinni hann þrettánda Íslandsmeistaratitilinn. Sex stórmeistarar taka þátt í mótinu, þeirra á meðal eru Jóhann Hjartarson og Jón L. Árnason sem hafa ekki verið meðal keppenda síðan á síðustu öld. Nota þeir mótið til þess að æfa sig fyrir Evrópumót landsliða sem haldið verður hér á landi í nóvember. Gunnar Björnsson segir þátttöku Jóhanns og Jóns gera mótið enn skemmtilegra og meira spennandi. Þar fyrir utan hafi aðstaðan sjaldan verið eins glæsileg fyrir keppendur og áhorfendur og í ár. 12 keppendur eigast við um Íslandsmeistaratitilinn í ár og verður því farið í 11 umferðir á jafnmörgum dögum. 24. maí verður svo krýndur Íslandsmeistari í skák.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir