Hjól eggjasalans

Ásdís Ásgeirsdóttir
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Hjól eggjasalans

Kaupa Í körfu

Hjól eggjasalans sem nýtt. KRISTJÁN Sigmundsson hefur varið rúmu ári í að gera upp reiðhjól föður síns, Sigmundar heitins Jónssonar, en fjölskylda Sigmundar hefur fært Garðabæ hjólið að gjöf. Morgunblaðið sagði í vor frá þessu sérstaka hjóli en Sigmundur ferðaðist á því á sjöunda og áttunda áratugnum og seldi frumbýlingum í Garðahreppi egg sem hænurnar hans urpu heima í Hörgártúni. Margir Garðbæingar kannast við hjólið frá þeim tíma en í haust verður það sett upp í bæjarskrifstofum Garðabæjar þar sem fólk getur barið það augum og rifjað upp gamlar minningar. MYNDATEXTI: Kristján og sonur hans Ingvi Snær við reiðhjólið sem hefur tekið algjörum stakkaskiptum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar