Hestapeysur
Kaupa Í körfu
Hestapeysur Hestapeysurnar prjónaði Edda úr venjulegum plötulopa en annað handverk er úr ull af forystufé. Húfurnar (hægra megin) með kindamunstrinu eru mjög vinsælar og stoppa stutt við í galleríinu á Fræðasetrinu á Svalbarði. „Forystufé hefur verið til hér um aldaraðir og alltaf verið í miklum metum. Það hefur það í eðli sínu að fara á undan fjárhópi í rekstri og aðrar kindur fylgja forystufénu. Stundum er forystuféð meira að vexti en annað fé og fegurra. Forystufé hefur verið órjúfanlegur hluti af sauðfjárhaldi Íslendinga allt frá upphafi byggðar hér á landi. Með harðfylgi sínu, vitsmunum og einstökum forystueiginleikum hefur það margsannað gildi sitt og not. Fullvíst er talið að fé með hegðunarmynstur íslenska forystufjárins sé hvergi þekkt í heiminum nú á dögum nema á Íslandi. Þessi eiginleiki er því afar fágætur.“
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir