Sópun á götum Reykjavíkur í mars, sjaldséð sjón
Kaupa Í körfu
Byrjað er að sópa götur í Reykjavík og verður farið í öll hverfi borgarinnar, að sögn Eiðs Fannars Erlendssonar, yfirmanns vetrarþjónustu hjá Reykjavíkurborg. Segir hann stefnt að því að klára verkefnið fyrir helgina. Mikil svifryksmengun hefur mælst á kyrrlátum og köldum dögum í borginni og ryk þyrlast upp á fjölförnum umferðar - æðum. Kvartað hefur verið undan því hve götur eru sjaldan sópaðar en nú virðist borgin ætla að bæta þar úr. Einnig á að rykbinda nokkrar götur í þessari og næstu viku. Sóparar munu ekki fara í húsagötur í Reykjavík en helstu umferðargötur, sem borgin er með í rekstri, verða hreinsaðar, sagði Eiður við mbl.is í gær.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir