Spursmál

Spursmál

Kaupa Í körfu

Arnar Þór Jónsson forsetaframbjóðandi situr fyrir svörum í nýjasta þætti af Spursmálum. Gustað hefur um framboð Arnars Þórs undanfarnar vikur, einna helst eftir að hann kærði Halldór Bald- ursson skopteiknara til siðanefndar Blaðamannafélags Ísland fyrir skopteikningu sem Arnari þótti fara yfir mörk. Síðustu skoðanakannanir sýna fram á fylgisaukningu Arnars Þórs. Mælist hann nú með 6% fylgi samkvæmt nýjustu könnun Prósents og situr þar með í sjötta sæti meðal frambjóðendanna tólf. Í þættinum verður krefjandi spurning- um beint að Arnari og knúið á um svör við því hvers konar viðhorf hann hefur til embættis forseta Íslands og með hvaða hætti hann hyggst beita sér í því nái hann kjöri. Ragnheiður Guðmundsdóttir, ritstjóri Eftir vinnu hjá Viðskiptablaðinu, mætir í settið ásamt Birni Inga Hrafnssyni ritstjóra Viljans til að rýna helstu fréttir líðandi viku undir stjórn Stefáns Einars Stefánssonar

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar