Hvanndalsbræður

Þorgeir Baldursson

Hvanndalsbræður

Kaupa Í körfu

Hvanndalsbræður jólatónleikar Hljómsveitin Hvanndalsbræður sló á laugardagskvöld upp jóla og áramótaballi á Verkstæðinu við Strandgötu á Akureyri, þar sem gamli Oddvitinn var. Með ballinu vildi hljómsveitin kveðja árið með stæl. Vel var mætt á Verkstæðið en á milli tvö og þrjú hundruð manns skemmtu sér vel í góðri stemn ingu og sagði einn ballgesturinn greinilegt að fólk hefði þyrst í alvöruball eftir tónleikatíðina í desember. Ungir sem aldnir gestir skemmtu sér, þeir yngstu 25 ára, sem var aldurstakmarkið, og þeir elstu í kringum sextugt. Dansgólfið var fullt, fólk söng hástöfum með og glæsileg tilþrif sáust á Verkstæðisgólfinu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar