Erla Þórarinsdóttir

Erla Þórarinsdóttir

Kaupa Í körfu

Vinnuskólinn í Reykjavík og Reykjavík 2000 standa í sameiningu að því að koma tíu skúlptúrum fyrir við Rauðavatn. Verkefnið er unnið í tilefni menningarborgaársins og er framlag Vinnuskólans en krakkar úr skólanum aðstoða listamenn við að koma verkum sínum fyrir við vatnið. Þegar hefur verið komið fyrir verki listakonunnar Erlu Þórarinsdóttur. Verkið heitir Norðurljósastóll og lagði listakonan flísalagðar tröppur upp að sæti þar sem njóta má norðurljósanna á kvöldin. Erla Þórarinsdóttir virðir fyrir sér útsýnið úr Norðurljósastólnum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar