Eykt
Kaupa Í körfu
Átta þúsund ferm. stórhýsi rís við Borgartún 21 Hús Vöruflutningamiðstöðvarinnar og Sendibílastöðvarinnar við Borgartún hafa verið rifin og á lóðinni er nú að rísa glæsileg nýbygging. Þarna er að verki byggingafyrirtækið Eykt. Magnús Sigurðsson kynnti sér þessa nýbyggingu, sem á eftir að setja mikinn svip á umhverfið. BORGARTÚN er að breyta um yfirbragð. Þar er byggingafyrirtækið Eykt ehf. að byggja um 8000 ferm. stórhýsi við Borgartún og nokkru austar er Nýherji að reisa stórbyggingu. Á næstunni má ennfremur gera ráð fyrir, að húsið að Borgartúni 19 verði rifið og nýtízkubygging reist í staðinn. Engar deilur hafa komið upp vegna þessara gömlu húsa, enda fáir, sem vilja halda í þau. Þetta eru hús, sem ekki sér eiga neina sögu, en voru byggð af vanefnum og ekki of vel viðhaldið. Það er því borgarprýði, þegar ný og glæsileg hús eru byggð í staðinn. Eykt hf. var stofnuð 1986. Aðaleigendur fyrirtækisins hafa verið frá upphafi byggingameistararnir Pétur Guðmundsson og Theódór J. Sólonsson. MYNDATEXTI: ÞEIR félagar, Theódór og Pétur, hafa keypt húsið við hliðina á nýbyggingunni og hyggjast byggja eina hæð ofan á það, þannig að það verði þrjár hæðir og um 2000 ferm. alls.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir