Aurskriður/Breiðdal

Þorkell Þorkelsson

Aurskriður/Breiðdal

Kaupa Í körfu

Stór aur- og grjótskriða féll úr fjallinu Tó rétt ofan við bæinn Tóarsel Mildi að ekki varð manntjón . FJÖLMARGAR aur- og grjótskriður féllu úr fjallinu Tó í Norðurdal um 20 km inn af Breiðdalsvík í gær. Stærsta skriðan féll rétt ofan við bæinn Tóarsel og þykir mesta mildi að ekki hafi orðið manntjón, en mannvirki skemmdust mikið og eyðilagðist um 100 fermetra skemma sem stóð um 20 metra fyrir ofan íbúðarhúsið, en hún bjargaði líklega lífi ábúendanna. MYNDATEXTI: Stærsta skriðan, sem féll úr fjallinu Tó í Norðurdal inn af Breiðdalsvík í gær, féll fyrir ofan bæinn Tóarsel og þykir mikil mildi að ekki hafi orðið manntjón, en skemma sem stóð fyrir ofan bæinn olli því að skriðan rann báðum megin við bæinn í stað þess að renna á hann.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar