Aurskriður/Breiðdal

Þorkell Þorkelsson

Aurskriður/Breiðdal

Kaupa Í körfu

Stór aur- og grjótskriða féll úr fjallinu Tó rétt ofan við bæinn Tóarsel mildi að ekki varð manntjón FJÖLMARGAR aur- og grjótskriður féllu úr fjallinu Tó í Norðurdal um 20 km inn af Breiðdalsvík í gær. Stærsta skriðan féll rétt ofan við bæinn Tóarsel og þykir mesta mildi að ekki hafi orðið manntjón, en mannvirki skemmdust mikið og eyðilagðist um 100 fermetra skemma sem stóð um 20 metra fyrir ofan íbúðarhúsið, en hún bjargaði líklega lífi ábúendanna. BAKSÍÐA Mikil úrkoma á Austurlandi Aurskriður valda milljónatjóni AUR- og grjótskriða úr fjallinu Tó hreif með sér skemmu og bar upp að íbúðarhúsinu á bænum Tóarseli í Breiðdal. Skriðan bar einnig með sér litla rútu og dráttarvél sem lenti á fjósinu og braut þar gat á vegg. Hörður Gilsberg bóndi í Tóarseli telur að skemman hafi bjargað íbúðarhúsinu og orðið íbúum til lífs. Eins og sjá má hreif flóðið með sér heyrúllur, en þær eru meira og minna ónýtar.r.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar