Futurice og T-21
Kaupa Í körfu
Á laugardaginn voru úrslit úr tísku- og hönnunarverkefnunum Futurice og T-21 tilkynnt á veitingahúsinu Rex og var það borgarstjóri Reykjavíkur, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, sem tilkynnti úrslitin í Futurice en Þórunn Sigurðardóttir leikkona tilkynnti úrslitin í T-21, samstarfsverkefni Reykjavíkur Menningarborgar og Eskimo Models, en T-21 vísar til tímamóta og tísku á nýju árþúsundi. Sjö tillögur og sjö hönnuðir voru valdir til að taka þátt í samkeppni sem fram fer í Perlunni á gamlárskvöld 1999 og munu gestir velja þá hönnun sem þykir skara fram úr og fær sigurvegari kvöldsins í verðlaun ferð fyrir tvo sem áhorfandi á tískuviku í London. María Ólafsdóttir er einn þeirra hönnuða sem valdir voru til þátttöku í Futurice.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir