Stjarnan- Haukar 20-21 í handbolta kvenna

Stjarnan- Haukar 20-21 í handbolta kvenna

Kaupa Í körfu

Guðríður Margrét Vilhjálmsdóttir, Stjörnunni, nær ekki að stöðva Hörpu G. Melsted, Haukum. frétt. HELDUR rættist úr viðureign Stjörnunnar og Hauka þegar liðin mættust í Garðabænum á laugardaginn. Efsta sæti deildarinnar var í húfi og setti það svip sinn á leikinn, sem byrjaði heldur varfærnislega en lauk með æsispennandi lokamínútum þegar Haukastúlkur höfðu 20:19 sigur. Þær hafa því komið sér makindalega fyrir á toppi deildarinnar með gott forskot á næstu lið, Stjörnuna og ÍBV, sem þær hafa þegar leikið við, og deildarsigur veltur algerlega á því hvort þær standa sig í stykkinu - ekki á óförum annarra. Valsstúlkur eru áfram í 4. sæti deildarinnar eftir 25:23 sigur á Gróttu/KR og Víkingum tókst að taka 6. sætið af FH með 25:24 sigri í VíkinniStjarnan Haukar handbolti kvenna leikurinn fór framm í Garðabæ

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar