Landsbankinn

Sverrir Vilhelmsson

Landsbankinn

Kaupa Í körfu

Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans, og Tryggvi Tryggvason, forstöðumaður fjármálamarkaða hjá bankanum. Tryggvi segir útlit gott bæði á hlutabréfa- og skuldabréfamarkaði og að nú megi segja um fjárfesta að sá eigi kvölina sem eigi völina. frétt : FJÁRFESTAR hafa ástæðu til bjartsýni, sagði Tryggvi Tryggvason, forstöðumaður fjármálamarkaða hjá Landsbanka Íslands, á hádegisverðarfundi sem bankinn hélt á þriðjudag. Tryggvi, sem lét þess jafnframt getið að fjárfestar skyldu sýna varfærni, fjallaði um innlendan verðbréfamarkað og sagði að þegar íslenska hlutabréfavísitalan væri borin saman við erlendar vísitölur sæist að íslensk hlutabréf séu hóflega verðlögð í dag. Hann sagði að nú væri hægt að fullyrða að botninum á hlutabréfamarkaðnum hefði verið náð síðastliðið haust, en frá þeim tíma hafa hlutabréf hækkað um á að giska

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar