Hátíð við Ægissíðu

Hátíð við Ægissíðu

Kaupa Í körfu

Eggja leitað á Ægissíðu MEÐ RANNSAKANDI augum röltu börn um fjöruna við Ægissíðu á laugardaginn í þeirri von að koma auga á egg. Þarna var ekki um að ræða eggjatínslu með hefðbundnum hætti enda fátt um hreiðrin enn sem komið er, heldur var harðsoðinna, skreyttra eggja leitað undir steinum í flæðamálinu og bak við þúfur. ........... Ýmislegt annað var við að vera fyrir börnin, hægt var að bregða sér á hestbak og mörg létu verða af því að fara í gervi indjána, katta eða hunda því boðið var upp á andlitsmálun. Á göngustígum var svo hægt að setjast undir stýri Go- kart-bíla og fara smárúnt um Ægissíðuna. MYNDATEXTI. Krakkarnir voru hrifnir af hestunum og nokkrir þeirra brugðu sér á bak eftir að páskaeggjaleitinni lauk. ( Hátíð við verbúðina á Ægissíðu )

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar