Gljúfrasteinn Halldór Kiljan Laxness

Einar Falur Ingólfsson

Gljúfrasteinn Halldór Kiljan Laxness

Kaupa Í körfu

Veggteppi Auðar í stofunni. Horft úr stofunni og inn í borðstofuna. Stofan á Gljúfrasteini er klædd með viðarplötum en þetta mun hafa verið í fyrsta skipti sem slíkt var gert hér á landi. Veggmyndina til vinstri teiknaði Auður Laxness og saumaði. Formin klippti hún úr úr steinbítsroði og saumaði á klæði. "Ég gerði þetta þegar Halldór fékk Nóbelinn," segir hún. "Hann var þá úti í tvo mánuði og ég var búin með myndina þegar hann kom heim." Fyrir neðan myndina eru kínverskur vasi og Búddastytta sem Auður keypti í Kína. "Ég keypti tvær svona styttur en önnur þeirra var tekin af mér, það mátti ekki flytja hana úr landi," segir hún. Yfir skenknum í borðstofunni hangir málverk eftir Svavar Guðnason. Til vinstri eru silfurkönnur, aðra gáfu vinnufélagar Auðar á Landspítalanum henni í brúðargjöf en hina keypti Halldór. Sögu silfurskálarinnar á miðjum skenk segir Auður sérkennilega. Þegar Halldór sigldi í fyrsta sinn utan eftir að heimsstyrjöldinni síðari lauk fór hann til Kaupmannahafnar. Þar hitti hann konu sem þekkti Jón Helgason prófessor, hún var frá einu Eystrasaltslandanna, ákafur aðdáandi Halldórs og vildi þýða verk eftir hann. Hún var vistmaður á taugahæli. Skömmu síðar sá hún í dönsku dagblaði mynd af Gljúfrasteini, en húsið var þá nýbyggt og algjör berangur umhverfis. Konunni varð mikið um að sjá hvernig umhorfs var hjá skáldinu og í kjölfarið fyrirfór hún sér. Skömmu síðar hafði lögfræðingur samband við Halldór og sagði konuna hafa ánafnað honum þessa skál í erfðaskrá sinni; Jón Helgason arfleiddi hún að ljósakrónu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar