Gljúfrasteinn Halldór Kiljan Laxness

Einar Falur Ingólfsson

Gljúfrasteinn Halldór Kiljan Laxness

Kaupa Í körfu

Eggið við arininn. Við arininn í stofunni stendur "Eggið" eftir Arne Jacobsen en þar sat Halldór gjarnan. Myndin til vinstri, ofan við stólinn, er eftir Kristján Davíðsson, máluð á gler. Í hinum stólnum er púði sem Auður gerði í París og kallaði Landaparís; litunum ætlaði hún að fanga andrúm borgarinnar. Á arinhillunni rísa hæst tvö Afríkulíkneski sem Halldór og Auður keyptu af Kristjáni Davíðssyni en hann flutti þau heim með sér þegar hann kom úr námi í Bandaríkjunum. Þá er frönsk stytta, mynd af Ása-Þór, stytta sem Auður keypti á Indlandi og önnur grænlensk. Yst til hægri er mynd eftir Ásmund Sveinsson sem Auður keypti um 1940.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar