Pollamót KA á Akureyri
Kaupa Í körfu
"Ég gerði ein afdrifarík mistök - sem kostuðu sjö mörk" ELDRI knattspyrnumenn en alla jafna sjást opinberlega komu saman á íþróttasvæði Þórs um helgina, fjórtánda árið í röð, á svokölluðu Pollamóti Þórsara. Keppt var í tveimur deildum karla að venju; þeir sem verða þrítugir á árinu reyndu með sér í Polladeild en fertugir og eldri í Lávarðadeild. Þá kepptu sjö lið í Ljónynjudeild, en þar voru á ferðinni konur 25 ára og eldri. Fylkismenn urðu hlutskarpastir að þessu sinni í Polladeildinni, sigruðu lið sem kallaði sig Stöngin inn 1:0 í úrslitaleiknum með þrumuskoti sem fór í stöngina og inn og þótti það vel við hæfi. Þeir Stangarmenn jafnvel taldir hafa sætt sig við tapið þar sem markið var gert með þessum hætti. MYNDATEXTI. David Seaman á Pollamóti? Nei ekki alveg, þetta er hann Loftur, markvörður Fylkis, sem mætti í gervi enska landsliðsmarkvarðarins.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir