Bubbi og Hera

Bubbi og Hera

Kaupa Í körfu

enginn myndatexti ÞAÐ TELJAST vart tíðindi að Bubbi Morthens sé á leið í langferð um Ísland, fáir hafa verið eins duglegir við að spila úti á landi og hann: allt frá því Utangarðsmenn þræluðu sér um sjávarplássin hefur Bubbi verið á ferðinni árlega og stundum oftar en einu sinni á ári. Það er aftur á móti meiri nýlunda að hann sé ekki einn á ferð með gítarinn, því í tónleikaferð sem hefst næstkomandi mánudag er með í förum söngvaskáldið Hera Hjartardóttir sem hefur vakið talsverða atyhygli fyrir tónlist sína og texta þó ekki sé hún orðin tvítug.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar