Laugarnesskóli - Morgunsöngurinn

Jim Smart

Laugarnesskóli - Morgunsöngurinn

Kaupa Í körfu

Útgáfuhátíð í tilefni af 50 ára afmæli morgunsöngsins í Laugarnesskóla "Langoftast mjög dugleg að syngja" SKÆR barnasöngur hljómar af öllum svölum og upp af gólfinu. Það er lagið Óskasteinninn sem fyllir salinn samkvæmt vali fimm ára leikskólabarna úr hverfinu og er ekki annað að heyra en að allur textinn sé á sínum stað. Borgarstjórinn og vinir hennar hafa hins vegar valið Kvæðið um fuglana en þegar skólastjórinn tilkynnir að að Ég er vinur þinn úr Disney-myndinni Leikfangasögu hafi orðið hlutskarpast í kosningu krakkanna sjálfra fer kurr um salinn. MYNDATEXTI: Morgunsöngnum var komið á laggirnar til að efla aga í skólanum enda þarf vænan skammt af slíku til að geta staðið kyrr í röð á meðan á söngstundinni stendur. Krakkarnir virtust þó ekkert eiga í vandræðum með það.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar