Lexus

Lexus

Kaupa Í körfu

LEXUS er lúxusbílaarmur Toyota og hefur herjað á bandaríska neytendur með góðum árangri undanfarin ár. Í Evrópu er uppskeran eitthvað rýrari en fyrirtækið er þó eini japanski framleiðandinn sem veitir þýsku eðalbílunum Mercedes-Benz, Audi og BMW harða samkeppni og þá ekki síst verðsamkeppni. Hérlendis hefur Lexus verið vel tekið og salan farið fram úr væntingum umboðsaðilans. Lexus er þó ekki fjöldasölubíll frekar en BMW eða Audi en það athyglisverðasta við bílinn er hagstætt verð miðað við búnað og gerð. Myndatexti: Farangursrýmið er 220 l stærra en í stallbaknum

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar