Fylkir - Fram 3 : 1

Fylkir - Fram 3 : 1

Kaupa Í körfu

Það var ekki laust við að Aðalsteinn Víglundsson, þjálfari Fylkismanna, væri grátklökkur þegar Egill Már Markússon, dómari, flautaði til loka leiks Fylkis og Fram. Á sínu fyrsta ári sem aðalþjálfari félagsins var uppskeran glæsileg - Fylkir bikarmeistari, í öðru sæti á Íslandsmótinu og í öðru sæti í deildabikarkeppninni. Þetta er árangur sem Aðalsteinn og aðstoðarmaður hans, Þórir Sigfússon, geta verið stoltir af þó svo að vonbrigðin hafi verið gífurleg hjá stuðningsmönnum liðsins þegar Íslandsbikarinn gekk félaginu úr greipum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar