Útgáfutónleikar hjá Jóhönnu Guðrúnu - Halldóra Baldvinsdóttir

Golli/ Kjartan Þorbjörnsson

Útgáfutónleikar hjá Jóhönnu Guðrúnu - Halldóra Baldvinsdóttir

Kaupa Í körfu

Jólagleði með Jóhönnu SÖNGKONAN unga, Jóhanna Guðrún, hélt tvenna tónleika til styrktar langveikum börnum á sunnudaginn, fyrsta sunnudag í aðventu. Þetta er sannarlega í anda jólanna enda er hún nýbúin að gefa út jólaplötu. Platan Jól með Jóhönnu er hennar þriðja en hinar tvær plöturnar hafa notið mikilla vinsælda. Fullt hús var á tónleikunum og eru það væntanlega gleðifréttir fyrir aðstandendur langveikra barna og ekki síst börnin sjálf. MYNDATEXTI: "Ítalska stjarnan" Halldóra Baldvinsdóttir kom fram á tónleikunum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar