Vín

Jim Smart

Vín

Kaupa Í körfu

Rioja-vínin spænsku þarf vart að kynna og ekki heldur framleiðandann Faustino en líklega hefur ekkert annað Rioja-vín verið jafnlengi á markaðnum og Faustino I. Það er hins vegar alls ekki eina vín fyrirtækisins og nú er í reynslusölu Faustino V Reserva 1996 (1.490 kr.). Ávöxtur í nefi er heitur og farinn að sýna nokkurn þroska, orðinn svolítið dýrslegur. Mildur ilmur af nýsöguðum viði og kryddi. Í munni hefur vínið nokkra sýru og er í þokkalegu jafnvægi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar