Jólagaman í Borgarleikhúsinu

Sverrir Vilhelmsson

Jólagaman í Borgarleikhúsinu

Kaupa Í körfu

Jólasveinavísur Jóhannesar úr Kötlum lifna við í Borgarleikhúsinu næstu helgi en þær hafa verið færðar í leikbúning. Einnig verður ýmislegt tengt jólunum rifjað upp og hver syngur með sínu nefi. Fyrsta sýningin var haldin í samvinnu við Kringluna og Kringlusafn síðustu helgi. Í leikstjórn Guðjóns Pedersen bregða Edda Björg Eyjólfsdóttir, Eggert Þorleifsson, Guðrún Ásmundsdóttir, Hanna María Karlsdóttir, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Margrét Helga Jóhannsdóttir, Marta Nordal og Pétur Einarsson sér í líki þessara þjóðsagnapersóna. Myndatexti: Jólasveinarnir heimsóttu Borgarleikhúsið um síðustu helgi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar