Sólveig Pétursdóttir

Halldór Sveinbjörnsson Ísafirði

Sólveig Pétursdóttir

Kaupa Í körfu

SÓLVEIG Pétursdóttir dómsmálaráðherra var við vígslu á nýju húsnæði Héraðsdóms Vestfjarða í gær auk þess sem hún heimsótti fyrirtæki og stofnanir í bænum. Þá sótti hún hádegisfund í Faktorshúsinu í Hæstakaupstað með sjálfstæðismönnum í Ísafjarðarbæ, Bolungarvík og Súðavík. Til fundarins voru boðaðir bæjarfulltrúar, formenn sjálfstæðisfélaga og stjórnarmenn í fulltrúaráði og þingmenn Sjálfstæðisflokksins. Sólveig heimsótti einnig fyrirtækið Sindraberg sem framleiðir sushi til frystingar, Þróunarsetur Vestfjarða, sýslumannsembættið á Ísafirði og Gamla Apótekið.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar