Hákarl
Kaupa Í körfu
GRÍÐARSTÓR beinhákarl kom í netin hjá Hjördísi NS 92, nánast við bryggju á Bakkafirði á dögunum. Var hann á milli 8 og 10 metrar á lengd. Fannst skipverjum þetta víst hálfgerður ódráttur, þar sem ekkert væri hægt að nýta kvikindið og netin voru öll uppsnúin á eftir. Tók það Stefni Magnússon skipstjóra og Hafþór Elíasson drjúga stund að greiða netin. En ólán eins er ánægja annars, unga sem aldna dreif að til að skoða ófreskjuna og fannst ungviðinu það sérlega spennandi. Leikskólinn greip auðvitað tækifærið og fór í vettvangsferð. Var búið að segja börnunum að sumir hákarlar væru hættulegir og þá vildu þau skiljanlega vita hvort þetta væri "sumir hákarlar". En beinhákarlar tilheyra víst ekki þeirri tegund.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir