Steinunn Guðjónsdóttir

Steinunn Guðjónsdóttir

Kaupa Í körfu

"ÞETTA var eins og happdrættisvinningur," segir Steinunn Guðjónsdóttir um það þegar henni var boðin þátttaka í Janusi endurhæfingu. Hún var úrskurðuð öryrki um áramótin 1999-2000 og í framhaldi af því var henni boðið að taka þátt í Janusarverkefninu. "Ég hef unnið við heimilishjálp og eldhússtörf í gegnum tíðina. Það stóð þannig á 1998 að ég fékk enga vinnu vegna þess hve ég var orðin slæm af nikkelofnæmi og psoriasis, m.a. á höndunum. Ég stóð því frammi fyrir því að gera eitthvað í mínum málum." enginn myndatexti. Janus prógrammið

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar