Gjafir til Heilbrigðisstofnunar Hvammstanga

Gjafir til Heilbrigðisstofnunar Hvammstanga

Kaupa Í körfu

NÝVERIÐ afhentu þrenn félagasamtök Heilbrigðisstofnuninni á Hvammstanga veglegar gjafir, til eflingar starfseminni. Lionsklúbburinn Bjarmi gaf nýtt fullkomið sjúkrarúm ásamt náttborði. Kvennabandið, sem er samband kvenfélaga V-Hún. og Krabbameinsfélags Hvammstangalæknishéraðs, gáfu 20 heilsudýnur í sjúkrarúm. Auk þess gaf Krabbameinsfélagið fullkominn skjávarpa ásamt fartölvu og sýningartjaldi. MYNDATEXTI: Fremri röð, f.v.: Sigurlaug Árnadóttir, Jónína Jóhannesdóttir, Sigurlaug Þorleifsdóttir, Fríða Pálmadóttir. Aftari röð: Jóhanna Birna Ágústsdóttir, Hólmfríður Skúladóttir, Lárus Þór Jónsson, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Pétur Daníelsson, Guðmundur Gíslason, Einar Esrason.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar