Bingó í Vinabæ
Kaupa Í körfu
SUNNUDAGSKVÖLD og reykmettaður salurinn er þéttsetinn. Í hliðarsal, sem er reyklaus, er líka fullt af fólki. Hvaðan kemur allt þetta fólk og hvað dregur það hingað á þennan stað? BINGÓ, það er málið. Bingó hefur um langt árabil notið stöðugra vinsælda víða um heim og virðist ekkert lát á, þrátt fyrir breyttan lífsstíl og nánast óþrjótandi möguleika á hvers konar afþreyingu. Í stórborgum erlendis má víða sjá blikkandi ljósaskilti þar sem fólk er hvatt til að líta inn og freista gæfunnar í bingó. Hér á landi hefur Stórstúka Íslands staðið fyrir bingó síðan árið 1982 og frá árinu 1990 hefur starfsemin farið fram í Vinabæ, þar sem áður var Tónabíó. Greinarhöfundur er einmitt þangað kominn til að fylgjast með og vitaskuld freista gæfunnar í leiðinni. Fólkið er á öllum aldri og raunar kemur á óvart hversu margt ungt fólk er þarna. Gamla þjóðsagan um að bingó sé bara fyrir eldri konur á greinilega ekki við rök að styðjast. Myndatexti: Blaðaúrklippa þar sem greint er frá niðurstöðum rannsókna þess efnis að bingóið sé betra fyrir heilastarfsemina en brids og skák.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir