Ísland - Skotland

(C) MOTIV-MYND, Jón Svavarsson

Ísland - Skotland

Kaupa Í körfu

Berti Vogts, þjálfari Skota, segir að þeir verði að stöðva Eið Smára. Hér bregður Eiður Smári á leik með nokkrum af stuðningsmönnum Skota sem sögðust ætla að stöðva hann. EIÐUR Smári Guðjohnsen sagði við Morgunblaðið í gær að það yrði enginn heimsendir þótt úrslitin í leiknum við Skota í dag yrðu ekki nógu hagstæð. Þetta væri fyrsti leikurinn í nýrri keppni og aðeins einn af mörgum mikilvægum. "En auðvitað vill enginn hugsa þannig eins og er. Við ætlum náttúrulega að gera okkar besta til að ná í þrjú stig, markmiðið er að sjálfsögðu að byrja keppnina vel og efla þannig sjálfstraustið fyrir þá leiki sem framundan eru. Ég er alltaf bjartsýnn og vonast eftir góðum úrslitum

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar