Hrönn ÞH 36 - Nýr bátur

Hafþór Hreiðarsson

Hrönn ÞH 36 - Nýr bátur

Kaupa Í körfu

Hrönn ÞH 36 aftur í flotann NÚ nýverið bættist nýr bátur í fiskiskipaflota Húsvíkinga þegar Hrönn ÞH 36 kom til heimahafnar í fyrsta sinn. Hrönn er 11 brúttórúmlestir af gerðinni Cleopatra Fischerman 33, smíðuð hjá Trefjum hf. í Hafnarfirði. Eigendur bátsins eru hjónin Ingólfur Árnason og Freyja Eysteinsdóttir, Ingólfur sagði að heimferðin hefði gengið vel, báturinn hafi reynst vel og hann væri mjög ánægður með hann. Ætlunin er að gera bátinn út til línu-, neta- og grásleppuveiða. MYNDATEXTI: Hrönn ÞH 36 við komuna til Húsavíkur. mynd kom ekki. Sendi hér tvær myndir sem eru teknar þegar nýr bátur kemur til Húsavíkur 7/11 annars vegar af bátnum og hins vegar af eigendum bátsins. Sendi fréttina á frett@mbl.is og til Hjartar Gísla. kv. Hafþór Hreiðarsson

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar