Víðir og Jóhannes

Hafþór Hreiðarsson

Víðir og Jóhannes

Kaupa Í körfu

FYRIR skömmu hóf nýr fjölmiðill göngu sína þegar vikublaðið Skarpur leit dagsins ljós á Húsavík. Það er Prentstofan Örk ehf. á Húsavík sem gefur það út. Örkin, sem ásamt að sinna hefðbundinni prentþjónustu, gefur út auglýsingablaðið Skrána sem komið hefur út á Húsavík síðan 1975. Víðir Pétursson, framkvæmdastjóri og eini eigandi fyrirtækisins, er ábyrgðarmaður blaðsins, ritstjóri er Jóhannes Sigurjónsson sem ritstýrði og gaf út Víkurblaðið á sínum tíma. MYNDATEXTI: Víðir Pétursson framkvæmdastjóri og Jóhannes Sigurjónsson ritstjóri hins nýja fjölmiðils Þingeyinga, sem heitir Skarpur.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar