Sjómenn heiðraðir

Hafþór Hreiðarsson

Sjómenn heiðraðir

Kaupa Í körfu

DAGSKRÁ sjómannadagsins á Húsavík fór vel fram að venju, veður með þokkalegasta móti og hátíðarhöldin vel sótt. Að venju voru húsvískir sjómenn heiðraðir fyrir störf sín, var það gert í Félagsheimili Húsavíkur þar sem kaffisala slysavarnadeildar kvenna fór fram. Að þessu sinni voru heiðraðir af sjómannadagsráði þeir Halldór Bjarnason og Sigurbjörn Sörensson. MYNDATEXTI: Halldór Bjarnason t.v. og Sigurbjörn Sörensson sem heiðraðir voru á sjómannadaginn, myndin er tekin á Sjóminjasafninu á Húsavík.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar