Þjóðsöngurinn og gínurnar

Sverrir Vilhelmsson

Þjóðsöngurinn og gínurnar

Kaupa Í körfu

Hendingar úr lofsöngnum Ó, guð vors lands eftir Matthías Jochumsson prýða um þessar mundir glugga og veggi verslana GK í Kringlu og við Laugaveg. Þjóðsöngurinn blasir við vegfarendum og viðskiptavinum í þráðbeinni línu, annars vegar á gleri en hins vegar á veggjum í versluninni sjálfri. Uppátækið hefur að sögn eigenda vakið athygli, en ráðgert er að skreytingin verði uppi fram á sumar. MYNDATEXTI: Línurnar úr þjóðsöngnum eru birtar á íslensku og innan sviga á ensku. Myndir teknar í GK-mönnum og GK-konum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar