Nissan Patrol

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Nissan Patrol

Kaupa Í körfu

NISSAN Patrol er einn þekktasti jeppinn á markaði hérlendis. 1997 kom fram ný kynslóð og fékk bíllinn þá mýkri línur og meiri búnað. 2000 fékk hann aflmeiri 3ja lítra dísilvél. Nú hafa verið gerðar lítils háttar breytingar á framendanum; kominn er nýr framstuðari með ljóskösturum, nýtt grill, nýr afturstuðari auk þess sem innréttingu bílsins hefur verið breytt. Patrol hefur verið eftirsóttur af jeppamönnum hér á landi enda hentar hann vel til breytinga. MYNDATEXTI: Breytt grill og framljós og ljóskastarar komnir neðan stuðara.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar